

hann er sko búinn að vera öðruvísi...byrjaði á því að ég fékk mér...já morgunmat...ég verð alltaf að byrja á því

síðan undirbjuggum við gömlu "heimkomu" stelpnanna

já þær komu í kvöld


fórum í Mercadona að kaupa eitthvað í gogginn handa þeim og síðan lögðum við í ferðalag norður á bóginn ætluðm að nota ferðina í innkaup.... MIKLAR tafir urðu á umferðinni...

allstaðar vegavinna í gangi hélt að við ætluðum aldrei að komast í MOLLIÐ en ferðinni var heitið í Mollið La Marina á Benidorm með viðkomu í Nike factory hefði nú betur sleppt því, þar var ekkert að finna,,,ekki græddu þeir á mér i dag en það gerið hins vegar La Marina:þ þar var sko hægt að versla fullt af bolum, nokkrar peysur og meira að segja skór númer 42

stúlkan glotti þegar ég spurði hvort hún ætti nr 42

ég get ekkert gert að því þó ég sé með stórar lappir og stór...

En svo nálgaðist kvðldið og við fórum að fikra okkur til baka og aftur lentum við í umferðarteppum en allt fór vel og við vorum tímanlega á flugvellinum. Ekki leið á löngu áður en tvær dúllur byrtust og þá voru nú gömlu glöð

Komum heim með viðkomu hjá honum Fredda sem eldaði alveg ágætis miðnætursnarl fyrir þreytta ferðalanga

Ekki meira í dag nema góða nótt